|
Við hjá GH erum með heildarlausnir fyrir heimili og fyrirtæki. Við bjóðum þér upp á bað- og eldhúsinnréttingar, skápa, flísar og parket, lýsingu og glugga- og hurðakerfi. Húseigendur eða húsbyggjendur koma með teikningar af húsnæðinu og við komum með hugmyndir að lausnum. Við hjá GH vinnum með hönnuðum hér heima og á Ítalíu sem sjá um hönnun á hverju verkefni fyrir sig í samstarfi við okkar viðskiptavini. Við bjóðum einnig upp á fulla hönnun á verslunarhúsnæði ásamt öllu efni og búnaði sem til þarf, en þau verkefni eru unnin af ítölskum hönnuðum og allt efni kemur frá Ítalíu.
|