| Hurðir |
|
|
|
|
Global House útvegar allar gerðir hurða, hvort sem um er að ræða innihurðir, útihurðir, bílskúrs- eða iðnaðarhurðir. Allar koma frá virtum evrópskum framleiðendum. ACEM Porte er ítalskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í vönduðum innihurðum og býður upp á fjölbreytta hönnun og útlit. Hurðirnar fást í mörgum viðartegundum eða sprautulakkaðar. Hvort sem það eru rennihurðir, hefðbundnar hurðir eða hurðir með gleri - með Acem gengurðu ávallt inn um fallegar dyr. Austurríska fyrirtækið Internorm framleiðir vandaðar útihurðir með 30 ára ábyrgð. Hurðirnar eru fáanlegar úr PVC, áli eða við. Fjölbreytt hönnun og útlit - mismunandi stærðir. Faraone er ítalskt fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði glerbyggingarlistar. Útihurðirnar frá Faraone eru engu líkar. Glæsilegar glerhurðir í öllum stærðum og gerðum - einnig rennihurðir. Bílskúrs- og iðnaðarhurðirnar eru frá Hörmann International. Fyrirtækið er með verksmiðjur í Þýskalandi og Belgíu og er meðal stærstu dreifingaraðila á bílskúrshurðum í Evrópu. Nær ótæmandi útfærslur í boði.
|
||||
| Um GH |
| Þjónusta |
| Heildarlausnir |
| Verkefni |
| Hönnun |
| Starfsmenn |